Hvar er hvar er hvar er húfan mín!!!!

 

CIMG6207CIMG6212CIMG6211

Húfurnar eru komnar í hús. Þeir gagnamenn sem vilja fá húfur verða að drífa sig og leggja inn á reikninginn sem Sólrún sendi á alla. Ekki er hægt að kaupa fleiri en eina húfu + buff því þær eru búnar.

Sólrún er búin að taka frá fyrir gangamenn en afhendir þær ekki nema fólk sé búið að greiða.

EKKI er skilda að kaupa húfur þanning að ef þú gangnamaður góður ætlar ekki fá eitt eintak þá þætti okkur vænt um að vita það. Það er kominn biðlisti W00t

 bkv Olof


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæææjjj!  Ógisslega flott húfa...Þetta verður bara flott

Sólin (IP-tala skráð) 1.9.2008 kl. 20:53

2 identicon

Sæl öll.

Þetta er bara glæsilegt með húfurnar.Ólöf og Sólrún, bestu þakkir fyrir eljuna við að koma því máli í höfn.

Þá er nú að verða mjög stutt í göngur. Við Tóti og Benedikt riðum með 9 hesta fra í Tungu í gærkvöld og förum síðan fram í hesthúsið á Þverá í kvöld, síðan fram í sæluna á miðvikudaginn og fara afla hráefnis í kvöldmáltíð gangnamanna.

Sjáumst hress í Urðhæðarskála Bestu kveðjur Rabbi 

Rafn Ben (IP-tala skráð) 2.9.2008 kl. 10:14

3 identicon

Sælt veri fólkið! Jæja þá er búið að baka, steikja og smyrja ofan í Tótallytótaliðið. Yndislegt að hitta loksins Jón flug í gær. En allavega poj poj megi ærguðinn vera ykkur hliðhollur þetta árið Sjáumst á föstudaginn.

Kveðja Kiddý

ps flottar húfur

Kiddý (IP-tala skráð) 3.9.2008 kl. 08:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband