Sagan á bak við textann

Hátíðargangnatextinn að þessu sinni er saminn við lagið Ég er kominn heim sem er eftir ,,Erlend" en upprunaleginn textinn er eftir Jón Sigurðsson. Óðinn Valdimarsson söng þetta inn á plötu fyrir ca. 40 árum. Bubbi og Björn Jörundur endurútgáfu þetta lag á útmánuðum. Það var jarmið í Bubba í frasanum að ferðalokum ... sem kveikti í mér að gera gangnatexta við þetta lag. Upprunalegi textinn er rómantískt ástarljóð bæði í bókmenntalegum og tilfinningalegum skilningi.

1. Bókmenntalegum þar sem skáldið talar um hversu allt er fallegt í sveitinni og hversu gott er að koma þangað heim og byggja þar sinn bæ. Þetta er rómantísk átthagaást í anda Fjölnismanna og Jónasar frá Hriflu.

2. Tilfinningalegum þar sem skáldið lýsir þessari tilfinningu hvað það er gott að koma heim ef maður er ástfanginn og ef ástin manns er þar fyrir á fleti og maður sér sína sæng útbreidda. Líkt og allt landslag er fallegt í fallegu veðri þá er allt umhverfi fallegt og gott að vera þar sem ástin manns er.

 Í þessum anda orti ég textann. Heiðin og fjöllin og jökullinn - alltaf jafn gaman að heimsækja öræfin og alltaf jafn gott að fara á heiðina hvernig sem viðrar - þar hittir maður vini og kunningja sem maður sér suma hverja ekki nema einu sinni ári, teygar guðaveigatár og smalar báðum tvílembunum niður á gangnadaginn samtals sex kindur.

M&M  


Nýr hátíðar-texti er kominn!

M&M sat við skriftir í nótt og nú er fæddur texti fyrir göngur 2008. Nýji textinn ber nafnið, Mér finnst ég kominn heim.

Þetta gerir það að verkum að það verður betra að ná sambandi við Magnús á leiðinni fram í skála, því eins og Núpsheiðarmenn vita þá hefur hann verið í tveimur heimum á framleið þar sem hann hefur verið að semja texta. Lagið sem Magnús valdi þetta árið er ekki síðra en það sem hann hefur valið áður og á eftir að hljóma um heiðina ásamt öllum hinum gömlu góðu.

Kærar þakkir til Magnúsar.

Bkv Olof


Mér finnst ég kominn heim

Er haustar að og húmið vex

á heiðina ég fer

saman safna sparifé

og sötra bjór með þér.

                         

Í skála snotrum upp við urð

 við eigum heiðaból

er lúnum eftir langan dag

oss ljær og veitir skjól.

 

Koníak teygum á kvöldin

kátína tekur þá völdin,

félögum fagna með höndum tveim

mér finnst ég kominn heim.

 

Að flöskulokum fer af stað

er föstudagur vex

undir fótinn landið legg

og leita að sauðum sex.

                         M&M


Nú erum við að smala saman !

Þá eru víst að verða foringjaskipti á Núpsheiðinni. Það gerist nú ekki oft, meiri festa í stjórnun þar en í Borginni. Hefði nú að mínu mati mátt klappa karlinn upp í nokkur skipti, hann hefur nú sjaldan eða aldrei verið sprækari.  Það verður hins vegar bara +  fyrir arftakann að hafa hann sér við hlið svona fyrstu 30 árin.

Því hafði verið spáð að um aldamótin myndi vanta þriðja Pál.  Þegar þetta var ort hafði Páll á Mýrum lengi stýrt leitum, líkt og afi hans.

" Hann stjórnar leitum líkt og afi hans,

í einni af sveitum okkar fagra lands

Þó ýmsir hafi ódauðlega sál

um aldamótin vantar þriðja Pál"

 Það er hins vegar Þórarinn sem nú stígur fram á völlinn að lokinni þriggja áratuga gangastjóratíð Rafns föður hans. 

Um hann mætti etv yrkja:

Hann leitum stjórnar líkt og faðir hans

og leiðist ekki að stíga krappan dans.

Þótt raunar jafnist enginn  á við Rafn

þá rekum allir stoltir "Tótasafn".

 Skrifað með fyrirvara um óstaðfesta og etv. stórlega ýkta frétt um gagnastjóraskipti.

Einnig algjörlega ómeðvitaður um eigin IP tölu, veit varla hvað það er. Skyldi Kári Stef geta svarað því. "Tetta er algjörlega órekjanlegt... " og skrifað undir dulnefninu "Jón Magg"

PS. Upp hefur komið sú hugmynd að spila bingó á kvöldvökunni í göngunum og nota eingöngu IP-tölur.

Vista og Birta  ( Á þetta ekki að Bárður og Birta  ? )

 


Núpsheiði 2008

Jæja þá er heldur betur farið að styttast í göngur...

- Ólöf er á fullu að græja húfur fyrir göngurnar.  Það er ekki alveg komið á hreint hvernig að þessu verður staðið, þ.e. hvort eða hvað þær muni kosta, hvað eigi að standa á þeim o.s.frv.   Endilega komið með hugmyndir í kommentin. 

- ATH!!  Rafn sem hefur verið gangnastjóri í 30 ár hefur sagt starfi sínu lausu Woundering og arftaki hans verður að öllum líkindum Þórarinn Óli Smile

- EMineM hlýtur að vera búin að semja gangnalagið 2008

- Úúúú það verður líka komið rafmagn til ljósa í skálann okkar góða!  Sett verður upp sólarsella um næstu helgi þá er komið ljós auk þess sem gasskynjari verður settur upp til öryggis!

- Undirbúningsvinna er hafin fyrir vatnsveitu og salernisaðstöðu...Er á þriggja ára planinu Wink

- Svo verður voða gaman að fara í leikinn...Hver á æluna...Sick...ennnn það er nú alltaf sami maðurinn sem á hana svo það verður ekkert erfitt að giska á það..sei nó mor!!

- Jæja hverjir lesa þessa síðu?? Og hverjir eru geim í göngur??


Með eða án þín

 

Einatt æða skjótt að mér

ágústlok og september

og ég sit við síma

legg mig í líma

legg við síma.

 

Fæ ég alla mína menn

mætir þú hér aftur enn

eða fer ég án þín

með eða án þín

með eða án þín vinur

já, ég fer með eða án þín.

 

Trausta tel ég Ingvar, Jón

Tóti reyndar missti sjón

og ég fer ei án þín.

 

Nappa Nilla fram með bjór

nýtur þegn með ekkert slór

og ég fer ei án þín

ég fer ei án þín

ég fer ei án þín, vinur!

Fram ég fer alls ekki án þín.

 

    Viðlag:

    Hooooj, hooooj, ég fer ei án þín

    ég fer ei án þín, vinur!

    Fram ég fer alls ekkert án þín.

 

Kartöflur ég kannski upp tek

kátínu og gleði vek

og ég fer ei án þín

 

Með miklum sóma ekki seinn

silung steikir Hesta-Sveinn

og ég fer ei án þín

ég fer ei án þín

ég fer ei án þín, vinur!

Ég svelt hér ef ég fer án þín.

 

Einn ég sit í djúpri sorg

syrgi Hauk frá Bræðraborg

og ég fer víst án þín

 

Andreu í kútinn kvað

karl þar braut í sögu blað

og ég fer víst án þín.

Ég fer víst án þín

ég fer víst án þín, vinur

Haukur minn, ég fer víst án þín.

 

 

    Viðlag:

    Hooooj, hooooj, ég fer víst án þín

    ég fer víst án þín, vinur!

    Haukur minn, ég fer víst án þín.

                                        M&M


Bíddu Rabbi

 

Í hinsta sinn að Húki lágu spor mín

því ég hamingjuna fann ei lengur þar.

Því rölti' ég suður' í Rafnshúsin

Rafn var að leggja af stað 

og lágum rómi hvíslaði til hans

 

    Bíddu Rabbi, bíddu mín

    bíddu því ég kem til þín

    æ, ég hljóp svo hratt

    að ég hrasaði og datt

    Bíddu Rabbi, bíddu mín.

 

Ráðvilltur hann stóð um stund og þagði

stökk svo til og bauð mér nefið í, og sagði:

Vertu ávalt velkominn í veisluhöldin mín

Ég býð þér góði fóður, fisk og vín.

 

    Ég sagði: ,,Bíddu Rabbi, bíddu mín

    bíddu því ég kem til þín

    :,:það ég segi satt

    að ég fer á því flatt

    ef að ég kem ei til þín:,:

                                    M&M


Sama tíma að ári

Napur, Núpsheiðarmenn,

norðan blæs hann kári

Við sjáumst aftur senn;

sama tíma að ári.

                              M&M


Söngur gangnamannsins

Séra Magnús

1)Ég hef allt líf mitt leitað að fé

í leitunum fæ frá vinnunni hlé

Þar eigra ég átta til sex

í andleysi sem stöðugt vex.

 

Viðlag:

Því held ég á heiðar, með tvo til reiðar

helsið er farið, og frelsið ég finn.

Áhyggjulaus, með áfengi á vörum

ég ávarpa hópinn minn.

 

2)Fyrst lagði' ég í leit á síðustu öld

þá leitað var, dag, nátt og kvöld

en nú brenna menn beint heim í hús

og brennivín teyga úr krús.

 

Viðlag:

:,:Því held ég á heiðar, með tvo til reiðar

helsið er farið, og frelsi ég finn.

Áhyggjulaus, með áfengi á vörum

ég ávarpa hópinn minn.:,:

                                                MM


Í göngurnar ég fer

Jón M.

Nú kominn er ég fram að Neðra-Núpi

Neðra-Núpi , Neðra-Núpi

Nú kominn er ég fram að Neðra-Núpi

og búinn að leggja á

 

Í göngurnar ég fer fer fer

Það býsna gaman er,er,er,

Ég þangað fer með þér, þér,þér

Já þetta er heljar her, her, her,Gangnamann ber við himinn

 

Nú fákana við látum spretta um mela

stoppum til dreypa á okkar pela

Við drulluskurði minnumst við hans Sela

Nú skálinn blasir við.

 

Á Urðhæðinni er, er, er

skáli sem ber ,ber ,ber

Af öðrum skálum hér, hér ,hér,Einar trúss

við skálum fyrir þér, þér ,þér.

 

Svo syngjum við tröllum lengi nætur

leggjum okkur til að fara á fætur

Rabbi hefur hér á öllu gætur

og ræsir klukkan sex

 

Við fáum okkur kex, kex,kex

kaffi og ekkert pex,pex,pex,

Tuborg, Gull og Becks ,Becks, Becks

Því norðanáttin vex, vex,vexÁ ekki að velta honum ?

 

Nú arka ég um holtin,fen og flóa

hvergi sé ég kind, en þarna er tófa    

Með veikri röddu reyni samt að hóa

Ég þreyttur orðinn er.

 

Í göngurnar ég fór fór fór

drakk feikna mikinn bjór,bjór, bjór

Ég er syfjaður og sljór, sljór, sljór         Núpsheiði 

og slitnir mínir skór, skór, skór

 

Nú ætla ég að skrúbba réttaskítinn   

Síðan ætla ég á ball að lít´ inn

Þó einhver kannski haldi að ég sé skrítinn

Þá nokkuð sama er mér

 

Á réttaball ég fer fer fer

Það býsna gaman er,er ,er

Ég þangað fer með þér þér þér,

Og þú kemur með mér, mér, mér

JM


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband